Psalms 96

1Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd! 2Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag. 3Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða. 4Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar. 5Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn. 6Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans. 7Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald. 8Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans, 9fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd! 10Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi. 11Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er, 12foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp, 13fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.
Copyright information for Icelandic